Fotbolti.net
08.09.23 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Wrexham stórhuga og semur við Steven Fletcher (Staðfest)

Steven Fletcher.

Steven Fletcher.

Canon

Mynd: Wrexham

Hollywood-eigendur Wrexham eru stórhuga en þeir voru núna að krækja í Steven Fletcher sem er með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni.
Wrexham leikur í fjórðu efstu deild á Englandi eftir að hafa unnið sig upp í deildina í kjölfarið á sigri í utandeildinni á síðustu leiktíð. Hollywood-leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney eru eigendur félagsins og hafa styrkt liðið mikið.

Núna er Fletcher mættur á frjálsri sölu frá skoska félaginu Dundee United.

Hinn 36 ára gamli Fletcher spilaði á sínum tíma sjö tímabil í ensku úrvalsdeildinni með Burnley, Úlfunum og Sunderland.

„Það sem seldi mér þessa hugmynd var metnaður félagsins og ef ég get hjálpað, þá er það frábært," segir Fletcher.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.