Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. október 2020 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spáði 2-1 og að Rúmenar myndu fá skrítið víti
Icelandair
Mynd: Úr einkasafni
Hugi Halldórsson, sem er með hlaðvarpið Fantasy Gandalf, var með ansi góða spá fyrir leik Íslands og Rúmeníu í undanúrslitum umspilsins fyrir EM næsta sumar.

Ísland vann leikinn 2-1 þar sem Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk okkar manna.

„Ég ætla að setja á þetta 2-1. Ég held að kassinn verði settur upp á loft og að Rúmenarnir fái eitthvað skrítið víti," sagði Hugi í Fantasy Gandalf hlaðvarpinu

Þessi spá reyndist rétt því Rúmenarnir fengu nefnilega skrítið víti eftir VAR skoðun. Þeir minnkuðu muninn í 2-1 en komust ekki lengra.

Hugi spáði í leiki umferðarinnar í Pepsi Max-deildinni fyrir Fótbolta.net á dögunum og fékk hann þrjá rétta.


Athugasemdir
banner
banner
banner