Andrew James Pew er búinn að framlengja samning sinn við Þrótt Vogum um eitt ár og verður því áfram spilandi aðstoðarþjálfari út næstu leiktíð.
Andy Pew aðstoðar Hermann Hreiðarsson með Þrótt og hefur verið á Vogum undanfarin tvö ár. Andy er lykilmaður í liði Þróttar og var valinn í lið ársins í 2. deildinni, þar sem Þróttur var aðeins tveimur stigum frá því að komast upp í Lengjudeildina.
Andy er 39 ára gamall varnarmaður og á vel yfir 200 leiki að baki hér á landi eftir að hafa spilað fyrir Selfoss í sjö ár.
Þróttur fékk 41 stig í 2. deildinni í sumar og endaði í 3. sæti deildarinnar. Er það besti árangur í sögu félagsins frá upphafi.
Athugasemdir