08.11.20 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Caicedo bjargaði stigi gegn Juve

Þetta er annar leikurinn í röð sem Caicedo bjargar Lazio með marki í uppbótartíma.

Mynd: Getty Images

<b>Lazio 1 - 1 Juventus</b>
0-1 Cristiano Ronaldo ('15)
1-1 Felipe Caicedo ('95)
0-1 Cristiano Ronaldo ('15)
1-1 Felipe Caicedo ('95)
Lazio tók á móti Ítalíumeisturum Juventus í fyrsta leik dagsins í ítalska boltanum og gerði Cristiano Ronaldo fyrsta mark leiksins eftir stundarfjórðung.
Juan Cuadrado gaf fasta fyrirgjöf fyrir markið og náði Ronaldo að koma líkamanum í boltann og þaðan hrökk hann í netið.
Juve var með yfirhöndina en heimamenn voru hættulegir. Ronaldo komst nálægt því að tvöfalda forystuna en skalli hans fór í samskeytin.
Þegar Juve virtist vera með sigurinn í höndunum tók Lazio að sækja án þess þó að skapa mikla hættu fyrr en á lokasekúndunum. Joaquin Correa gerði þá frábærlega, hann tætti vörn Juve í sundur og gaf á varamanninn Felipe Caicedo sem skoraði með síðasta sparki leiksins.
Juve er í þriðja sæti eftir jafnteflið, með 13 stig eftir 7 umferðir. Lazio er með 11 stig.