Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 08. desember 2022 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Jong er ekki til sölu - „Elskaður hjá Barcelona
Mynd: Getty Images

Jordi Cruyff yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona segir að Frenkie de Jong miðjumaður liðsins sé ekki til sölu.


De Jong var eftirsóttur í sumar og var mikið orðaður við Manchester United og það leit út fyrir að Barcelona þyrfti að selja hanna eftir að liðið endaði í fjárhagsvandræðum.

Cruyff segir þó að það hafi sloppið og því hafi hann verið áfram.

„Frenkie de Jong er ekki til sölu. Hann er lykilmaður fyrir okkur, svo sá tími er liðinn. Hann er hérna og er mikilvægur. Í lok síðasta sumars eftir 'Fair Play' umræður var hann áfram og De Jong er elskaður hjá Barcelona," sagði Cruyff.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner