Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 09. janúar 2020 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Málverk Tolla afhent
Mynd: Aðsend
Fótbolti.net og listamaðurinn Tolli tóku höndum saman í desember eins og undanfarin ár og buðu upp málverk eftir Tolla hér á vefnum.

Uppboðið stóð til 29. desember og kaupandinn hefur nú fengið það afhent. Hann óskaði eftir nafnleynd en lét hafa eftir sér að hann væri virkilega ánægður með framlag FN og Tolla varðandi uppboðið og framlag til góðra málefna.

Málverkið í ár sem er 120 x 120 cm að stærð má sjá hér með fréttinni.

Öll upphæðin rann til Bjartrar sýnar að þessu sinni. Björt sýn er styrktarfélag fyrir Ikhlaas munaðarleysingja heimilið í Oyugis, Kenía.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner