Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 09. janúar 2021 06:00
Aksentije Milisic
Flick: Bayern mun ekkert versla í glugganum
Mynd: Getty Images
Hansi Flick, þjálfari Bayern Munchen, segir að félagið mun ekki kaupa neinn leikmann í glugganum sem nú er opinn í janúar mánuði.

Flick sagði að það var möguleiki á að fá einn til tvo nýja leikmenn en svo hafi verið ákveðið að kaupa ekkert og fara sparlega með peninginn á þessum fordæmalausu tímum.

Síðasta árið hefur verið erfitt fyrir Bayern fjárhagslega séð eins og svo mörg önnur lið og hefur félagið þurft að gjalda fyrir það að stuðningsmenn mega ekki koma á völlinn.

„Ég vil ekki biðja um nýja leikmenn. Þetta eru ótrúlega erfiðir tímar sem við lifum á í dag. Ég veit hvernig staðan er hjá þessu félagi núna," sagði Flick.


Athugasemdir
banner
banner