Leik Leicester City og Everton, sem átti að fara fram á Goodison Park á þriðjudag, hefur verið frestað, en enska úrvalsdeildin samþykkti það á fundi í dag.
Leicester kallaði eftir því að fresta leiknum þar sem Brendan Rodgers nær ekki stilla upp nægilega frambærilegu liði.
Nokkra leikmenn vantar vegna Covid-19 en í útskýringu Leicester kom einnig fram að nokkrir leikmenn væru frá vegna meiðsla eða í Afríkukeppninni.
Enska úrvalsdeildin samþykkti því að fresta leiknum en ekki er búið að finna nýjan leikdag.
Athugasemdir