Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   mán 09. janúar 2023 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verðlaunin komu Hákoni ekki á óvart - „Annað hvort ég eða Arnór"
Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var fótboltamaður ársins á Íslandi í fyrra.

Hann varð danskur meistari með FC Kaupmannahöfn, lék sína fyrstu leiki í Meistaradeild Evrópu og spilaði sömuleiðis sína fyrstu A-landsleiki.

Í viðtali við Bold ræðir hann stuttlega um árið sem hann átti. Hann kveðst stoltur af því.

„Þetta hefur verið stórkostlegt ár fyrir mig þó íslenska landsliðið hafi ekki spilað nægilega vel," segir Hákon.

Hann segir að það hafi ekki komið sér á óvart að vera fótboltamaður ársins á Íslandi. „Nei, þetta kom mér ekki á óvart. Það var annað hvort ég eða góður vinur minn, Arnór SIgurðsson. Ég er bara 19 ára, en þetta kom mér ekki á óvart."

Um markmið sín árið 2023 segir hann: „Ég vil bara vinna deildina og bikarinn. Ég vil bara skora fleiri mörk og leggja meira upp," segir Hákon sem var nýverið orðaður við Salzburg í Austurríki.
Athugasemdir
banner
banner