09.02.17 - 07:51
Hafliði Breiðfjörð
Frederik: Kom á óvart að þeir hafi ekki skapað fleiri færi
Auglýsing

Frederik Schram var markvörður Íslands gegn Mexíkó í nótt.

Mynd: Getty Images

„Þetta var mjög fínn leikur í dag,\" sagði Frederik Schram markvörður íslenska landsliðsins eftir 1-0 tap gegn Mexíkó í Las Vegas í nótt.
„Mexíkó var mun betra lið en við, þeir spiluðu mjög vel en þeir sköpuðu sér ekki eins mörg tækifæri. Þeir náðu markinu og fengu hálffæri sem hefðu getað skapað mark.\"
„Við gerðum það sem við höfðum lagt upp með og héldum öllu skipulagi. Ég er vonsvikinn með að við höfum ekki skapað fleiri tækifæri en við gerðum. Þetta var góður leikur og góð reynsla fyrir okkur yngri leikmennina,\" sagði hann.
En kom eitthvað á óvart hjá Mexíkóunum? „Það kom mér á óvart að þeir hafi ekki skapað sér fleiri tækifæri því þeir voru mikið með boltann sem leiðir alltaf til til marktækifæra.\"
Fredrik er í U21 árs landsliðinu en fékk núna tækifærið sem byrjunarliðsmarkvörður A-landsliðsins í fyrsta sinn. „Vonandi var þetta ekki mitt síðasta tækfæri því þetta gefur mér svo mikinn aukinn kraft í að standa mig áfram vel og spila vel með Roskilde.\"
„Það var mjög gott fyrir mig að byrja hérna í dag með þessum strákum. Ég þekki Hadda (Hallgrím Jónasson) og Orra (Sigurð Ómarsson) svo það var mikill skilningur á milli okkar eftir að hafa spilað saman.\"