Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. febrúar 2021 16:15
Magnús Már Einarsson
Bamford með sjálfan sig sem fyrirliða í Fantasy deildinni
Mynd: Getty Images
Patrick Bamford, framherji Leeds, skoraði sitt tólfta mark í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili þegar liðið lagði Crystal Palace í gærkvöldi.

Bamford hefur greint frá því að hann sé mikill áhugamaður um Fantasy deildina í ensku úrvalsdeildinni.

Eftir leikinn í gær var hann spurður að því hvort hann hafi verið með Raphina í liðinu sínu í Fantasy deildinni en hann hefur leikið vel á tímabilinu.

„Ég er ekki með hann en ég er sjálfur fyrirliði í mínu liði," sagði Bamford léttur í bragði í viðtali við Sky.

Hér má horfa á viðtalið í heild
Athugasemdir
banner
banner