Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 09. mars 2023 22:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ten Hag þakklátur að stuðningsmennirnir stóðu við bakið á liðinu
Mynd: EPA

Manchester United svaraði skelfilega tapinu á Anfield um síðustu helgi með góðum 4-1 sigri á Real Betis í fyrri leik liðanna á Old Trafford í kvöld.


Wout Weghorst skoraði loksins og Bruno Fernandes átti flottan leik eftir að hafa fengið mikla gagnrýni fyrir frammistöðuna um helgina.

Erik ten Hag stjóri Manchester United var að vonum ánægður með sigurinn í kvöld og þakkaði fyrir stuðninginn.

„Við áttum frábæran leik. Staðan hefði átt að vera 3-0 í hálfleik, en við gerum ein mistök og okkur er refsað og staðan er 1-1. Seinni hálfleikurinn var sérstaklega góður. Það var gott að gefa stuðningsmönnunum eitthvað, þeir gáfu okkur líka. Þeir stóðu við bakið á okkur eftir sunnudaginn, ég er þakklátur fyrir það,"


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner