Mikel Arteta var mjög pirraður eftir jafntefli Arsenal gegn Man Utd á Old Trafford í kvöld og rauk úr viðtali hjá Sky Sports.
Arteta var spurður að því hvort hann gæti varið leikmennina vegna meiðslavandræða í herbúðum liðsins.
Arteta var spurður að því hvort hann gæti varið leikmennina vegna meiðslavandræða í herbúðum liðsins.
„Ég mun alltaf verja leikmennina því það er vilji til að vinna, það er ekki spurning um það. En við verðum að vera betri sem lið á svona augnablikum," sagði Arteta.
Patrick Davison hjá Sky Sports spurði Arteta hvort hann sæi eftir því að hafa ekki keypt framherja í janúar. Arteta neitaði því og reyndi að yfirgefa svæðið.
Davison sagði þá að hann væri með eina spurningu í viðbót.
„Ég verð að spurja þig um tiitlbaráttuna því það munar 15 stigum núna. Er það of mikið?" Sagði Davison.
Arteta neitaði að svara spurningunni og gekk í burtu.
Athugasemdir