Ólíklegt er að ásakanir um mútgreiðslur þegar kemur að HM í Katar árið 2022 muni leiða til þess að HM fari ekki fram í Katar.
Í fyrradag kom fram að Katarar hafni áskönunum og Rússar gera slíkt hið sama en meintar mútugreiðslur áttu sér stað þegar ákveðið var að halda HM2018 í Rússlandi.
Sjá einnig:
Rússar og Katarar hafna ásökunum um útdeilingu á mútum

Sylvia Schenk sem leiðir hóp í Þýskalandi sem vinnur með gagnsæi í íþróttum segir að það vanti vigt í ásakanirnar gegn bæði Rússum og Katar.
„Það er ekki miið bitastætt í þessari ákæru þegar kemur að mútugreiðslum í tengslum við Katar, ekki er einu sinni greint frá upphæðum sem sagt er að hafi farið á milli,"segir Sylvia.
„Það er ekki talað um hver á að hafa borgað og engar staðreyndir um hvernig eða hvenær greiðslan var. Það er bara ein setning í sjötíu blaðsíðna ákæru."
„Ég get ekki ímyndað mér að þetta ýti undir frekari aðgerðir."
Sylvia segir ennfremur að ef málið fari lengra að það sé ólíklegt að það klárist fyrir árið 2028 og þá í fyrsta lagi. Hún segir þá einnig að ólíklegt sé að HM verði tekið af Katar jafnvel þó sannanir væru fyrir að mútur hefðu verið greiddar.
Athugasemdir