Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 14:52
Elvar Geir Magnússon
Ísland síðasti mótherji Messi og heimsmeistaranna fyrir HM
 Birkir Bjarnason og Lionel Messi á HM 2018.
Birkir Bjarnason og Lionel Messi á HM 2018.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur staðfest að íslenska landsliðið mun mæta Argentínu í vináttulandsleik á Jordan-Hare leikvangnum í Auburn, Alabama í Bandaríkjunum þriðjudaginn 9. júní.

Þetta verður heldur betur áhugavert verkefni. Leikurinn verður síðasti leikur ríkjandi heimsmeistara Argentínu í undirbúningi sínum fyrir HM 2026 en Argentína er þar í riðli með Alsír, Jórdaníu og Austurríki.

Búist er við því að þetta verði síðasta heimsmeistaramót Lionel Messi, eins besta leikmanns sögunnar.

Þetta er aðeins í annað sinn sem Ísland mætir Argentínu en fyrsti leikur liðanna fór fram í lokakeppni HM 2018. Þar skildu liðin jöfn í Moskvu, 1-1, og var það Alfreð Finnbogason sem skoraði mark Íslands í leiknum. Hannes Þór Halldórsson varði víti frá Messi í leiknum eins og frægt er.

Áður en Ísland ferðast til Bandaríkjanna mætir liðið Japan á þjóðarleikvanginum í Tokýó í Japan 31. maí.
Slapp
banner
banner