Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 09. maí 2021 14:28
Aksentije Milisic
Davíð Smári settist hjá stuðningsmönnum Aftureldingar eftir rauða spjaldið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding og Kórdrengir áttust við í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar í gær.

Mikið gekk á í leiknum en Kórdrengirnir náðu forystunni þegar Connor Mark Simpson skoraði í byrjun síðari hálfleiks.

Afturelding gafst hins vegar ekki upp og jafnaði metin í uppbótartímanum. Þar var að verki Patrekur Orri Guðjónsson og því niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, fékk rautt undir lok fyrri hálfleiks en hann var eitthvað ósáttur með dómara leiksins.

Þegar Davíð Smári var rekinn burt þá ákvað hann að fá sér sæti hjá stuðningsmönnum Aftureldingar og horfa á restina af leiknum þar.
Myndir af Davíð Smára má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner