Heimild: Vísir
Ásgeir Marteinsson skoraði jöfnunarmark beint úr aukaspyru gegn Fylki í Kórnum í gær. Ásgeir kom seint inn á sem varamaður og á 91. mínútu lét hann vaða á mark gestanna af löngu færi.
Ásgeir sagði í viðtali við mbl.is að hann hafi séð að Ólafur Kristófer Helgason, markvörður Fylkis, hafi staðið framarlega og hafi hugsað af hverju ekki að láta vaða?
Ólafur Jóhannesson, sérfræðingur í Pepsi Max-stúkunni í gær, sagði að nafni sinn Ólafur Kristófer hefði allan daginn átt að verja skotið. Atli Sveinn Þórarinsson, annar af þjálfurum Fylkis, tók í sama streng í viðtali eftir leik.
„Já, ég held að ég og Óli séum báðir sammála um að hann eigi að verja þetta skot, ekki spurning," sagði Atli í viðtali við Stöð 2 Sport í gærkvöldi.

Sjá einnig:
Skorar á Atla að sýna Ólafi traust sem aðalmarkvörður
Ásgeir Marteins nennir ekki að sitja á bekknum
Segir Aron Snæ mun betri markvörð en Ólaf
Athugasemdir