Vålerenga og Rosenborg gerðu 1-1 jafntefli í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Hólmar Örn Eyjólfsson spilaði allan leikinn í vörn Rosenborg á meðan Viðar Örn Kjartansson var allan tímann í fremstu víglínu hjá Vålerenga.
Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Even Hovland, leikmaður Rosenborg, gerði sjálfsmark á 39. mínútu áður en Kristoffer Zachariassen jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks.
Niðurstaðan 1-1 jafntefli en Vålerenga mætir Brann í næstu umferð á meðan Rosenborg spilar við Viking.
Athugasemdir