Óli: Sama hvar þú ert sleginn, það er alltaf jafn slæmt
Auglýsing

Ólafur Jóhannesson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Jóhannesson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals var að sjálfsögðu afskaplega kátur með að vinna Víkinga 3-2 í Borgunarbikarnum í kvöld.
Víkingur komst í 2-0 í fyrri hálfleik áður en Valsmenn náðu að jafna í þeim síðari.
Valsmenn skoruðu svo með síðustu snertingu leiksins þegar Nikolaj Hansen skallaði hornspyrnu Guðjóns Péturs Lýðssonar í markið.
Óli gat ekki útskýrt lélega byrjun síns liðs.

„Ég er ekki með það á hreinu núna, við byrjuðum ekki neitt.\"
Hann segir hálfleiksræðuna ekki hafa verið nein geimvísindi.
„Við gátum ekki verið svona lélegir áfram svo við fórum yfir einföldustu hlutina.\"
Í stöðunni 2-1 fær Martin Svensson, leikmaður Víkinga rautt spjald fyrir að slá Nikolaj Hansen í klofið.
„Ég held hann hafi slegið hann. Það er alveg sama hvar þú ert sleginn, það er alltaf jafn slæmt.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.