Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 09. júní 2021 13:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Henderson svarar Keane: Ég kann nokkra spilagaldra
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson er að koma til baka eftir meiðsli og lék á sunnudag sínar fyrstu mínútur síðan í febrúar þegar hann kom inn á í æfingaleik með enska landsliðinu. Hann er í landsliðshópnum sem tekur þátt í EM og hefur það talsvert verið gagnrýnt.

Roy Keane er einn af þeim sem hefur gagnrýnt valið: „Mér finnst að Jordan eigi ekki að vera þarna ef hann getur ekki haldið sér í formi. Hann hefur ekki sparkað í bolta í þrjá og hálfan mánuð þannig það er ekki fræðilegur að hann sé orðinn góður. Þeir vilja hafa hann á svæðinu en til hvers? Er hann þarna til að gera spilagaldra eða vera með tónlistaratriði. Sér hann um spurningakeppni á kvöldin? Til hvers er hann þarna?" sagði Keane á sunnudag.

Henderson svaraði þessum ummælum í gær.

,Jú, þessir spilagaldrar sem Keane kom inn á - ég á nokkra slíka upp í erminni," sagði Henderson.

„Sem leikmaður viltu spila og ég er ekki bara hér til að vera í kringum liðið. Ég vil spila leikina en stjórinn stýrir því. Ég verð klár þegar kallið kemur og vonandi get ég hjálpað liðinu í keppninni. Roy má segja það sem hann vill um mig, hann leyfði mér að spila minn fyrsta leik hjá Sunderland og ég væri ekki hér án þess að hafa spilað þar. Mér fannst þetta eiginlega bara fyndið hjá honum."

„Við vitum mögulega meira um stöðuna en Roy,"
sagði Henderson sem segist vera tilbúinn í fyrsta leik Englands á sunnudag gegn Króatíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner