Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 09. júní 2021 17:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Kemur mér á óvart að hann vann ekki fleiri verðlaun"
Kane
Kane
Mynd: EPA
Grealish
Grealish
Mynd: EPA
Harry Kane fékk fáar viðurkenningar fyrir spilamennsku sínar í vetur þrátt fyrir að vera bæði markahæsti og stoðsendingahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.

Kevin De Bruyne og Ruben Dias voru valdir bestu leikmenn úrvalsdeildarinnar en margar kosninar fara fram eftir tímabilið á ári hverju.

Stuðningsmenn, leikmenn og blaðamenn eru meðal þeirra sem eru í dómnefndum.

Jack Grealish, liðsfélagi Kane í enska landsliðinu, kom inn á árangur Kane á tímabilinu á blaðamannafundi.

„Þú sem leikmaður mætir hingað og spilar með Harry Kane, sem hefur átt besta tímabil í sögu úrvalsdeildarinnar," sagði Grealish.

„Ég veit ekki af hverju hann fékk ekki fleiri verðlaun en hann fékk. Það er mér ánægja að spila í þessu liði með leikmönnum eins og honum."

„Það kemur mér á óvart að hann vann ekki fleiri verðlaun,"
sagði Grealish.

Kane skoraði 23 mörk í deildinni á leiktíðinni og lagði upp fjórtán þegar Tottenham endaði í 7. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner