Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 09. júní 2021 21:19
Brynjar Ingi Erluson
Meiðsli Benzema ekki alvarleg - Klár í fyrsta leik á EM
Karim Benzema meiddist gegn Búlgaríu en verður klár fyrir fyrsta leik á EM
Karim Benzema meiddist gegn Búlgaríu en verður klár fyrir fyrsta leik á EM
Mynd: EPA
Karim Benzema, framherji Real Madrid og franska landsliðsins, fór meiddur af velli í 3-0 sigri Frakklands gegn Búlgaríu í gær en meiðsli hans eru ekki alvarleg.

Benzema var skipt af velli á 41. mínútu í gær og kom Olivier Giroud inná í hans stað.

Það var talið að Benzema gæti mögulega misst af byrjun Evrópumótsins en svo er ekki. Hann verður klár í fyrsta leik gegn Þýskalandi þann 15. júní.

Giroud nýtti tækifærið sitt vel eftir að hann kom inná en hann gerði tvö mörk fyrir franska liðið og er nú aðeins fimm mörkum frá því að jafna markamet Thierry Henry.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner