Portúgalska félagið Braga hefur samþykkt tilboð Wolves í vængmanninn Rodrigo Gomes. David Ornstein segir frá þessu í dag.
Wolves kaupir Gomes á 12,7 milljónir punda en það náðist samkomulag um kaupverð í dag.
Gomes, sem er 20 ára gamall. gerir fimm ára samning við Wolves með möguleika á að framlengja um annað ár.
Atlético Madríd var í samkeppni við Wolves um Gomes, en enska félagið hafði betur í baráttunni.
Gomes kom að sautján mörkum með Braga í öllum keppnum á síðasta tímabili og vann sér um leið inn sæti í U21 árs landsliði Portúgals.
Athugasemdir