Fotbolti.net
09.07.15 - 22:05
Gunnar Birgisson

Davíð Viðars: Síðast sendi konan mín mig með nesti

Auglýsing
Davíð átti frábæran leik á miðjunni í dag.

Davíð átti frábæran leik á miðjunni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

„Þetta var náttúrulega bara virkilega góður sigur við þurftum að hafa fyrir þessu,\" sagði Davíð Þór Viðarsson fyrirliði FH í samtali við Fótbolta.net eftir sigurleik gegn SJK í forkeppni Evrópudeildarinnar. Leiknum lauk með 1-0 sigri Hafnarfjarðar liðsins.
„Við vorum bara skipulagðir og agaðir og þeir áttu ekki mikið af færum. Þetta var bara virkilega flott og ánægjulegt fyrir klúbbinn að komast áfram.\"

Langt ferðalag bíður FH-liðsins í næstu umferð keppninnar.
„Ég hef farið þarna einu sinni áður, þá sendi konan mín mig með nesti með sér þar sem hún hafði ekki mikið álit á matnum þarna. Það er aldrei að vita nema maður taki bara nesti fyrir allt liðið núna, sagði Davíð léttur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.