Vinstri bakvörðurinn Alberto Moreno er genginn í raðir Villarreal á frjálsri sölu.
Hinn 27 ára gamli Moreno skrifar undir fimm ára samning við Villarreal.
Moreno var á mála hjá Liverpool á síðustu leiktíð, en samningur hans rann út eftir leiktíðina. Moreno fékk ansi fá tækifæri á síðasta tímabili sínu með Liverpool en hann lék einungis tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Moreno lék með Liverpool frá 2014 til 2019, en nú hefst nýr kafli á hans ferli.
Villarreal hafnaði í 14. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Welcome to the Yellows @lfc18alberto! 💛https://t.co/QNwRdMFwAd pic.twitter.com/TaiuhQ1C6p
— Villarreal CF English (@Eng_Villarreal) July 9, 2019
Athugasemdir