Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 09. júlí 2019 18:00
Magnús Már Einarsson
Manchester City lánar Muric til Nottingham Forest (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur fengið markvörðinn Aro Muric á láni frá Manchester City.

Muric er tvítugur landsliðsmaður Kósóvo.

Á síðasta tímabili átti Muric að vera í láni hjá NAC Breda í Hollandi en Manchester City kallaði hann til baka eftir mánuð þar.

Muric spilaði síðan sinn fyrsta leik með Manchester City í enska deildabikarnum.

Manchester City mun væntanlega fá spænska markvörðinn Asier Riesgo eftir að Muric var lánaður en Riesgo verður þá Ederson og Claudio Bravo til halds og trausts.
Athugasemdir
banner