þri 09. júlí 2019 20:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Real lánar Luca Zidane til Racing (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Real Madrid er búið að lána Luca Zidane til Racing Santander út komandi leiktíð.

Racing lék í þriðju efstu deild á síðustu leiktíð en komst upp í Segunda Division í vor.

Keylor Navas og Thibaut Courtois eru markverðirnir sem Luca væri í samkeppni við hjá Real og telur félagið best að hann fái reynslu í næst efstu deild á komandi leiktíð.

Það var farðir Luca, Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, sem mælti með Racing og sonurinn ákvað að fylgja ráðum föður síns. Luca hefur leikið tvo aðalliðsleiki fyrir Real.

Samningur Luca rennur út næsta sumar en Real ætlar að framlengja við hann á næstu dögum.

Í sumar hefur Real losað sig við nokkra leikmenn úr hópnum. Marcos Llorente, Mateo Kovacic, Raul de Tomas, Sergio Reguilon, Martin Ødegaard og Theo Hernandez hafa allir haldið á brott frá Madridarrisanum.
Athugasemdir
banner
banner
banner