Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 09. júlí 2020 17:14
Elvar Geir Magnússon
Hemmi Hreiðars ráðinn þjálfari Þróttar Vogum (Staðfest)
Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson.
Mynd: Þróttur V
Hermann Hreiðarsson, fyrrum landsliðsmaður og fyrrverandi þjálfari ÍBV og Fylkis hefur tekið við liði Þróttar sem hefur sent út fréttatilkynningu þess efnis og má lesa hana hér að neðan.

Þróttur Vogum er með fimm stig í 8. sæti 2. deildar karla.

Fréttatilkynning knattspyrnudeildar Þróttar Vogum

Knattspyrnudeild Þróttar gerði fyrr í dag samning við Hermann Hreiðarsson um að taka við þjálfun meistaraflokk Þróttar. Hermann á langan feril að baki sem leikmaður og spilaði á sínum tíma tæplega 500 leiki fyrir lið á Englandi, á að baki 89 leiki fyrir A landslið Íslands og var hann fyrirliði í 16 þeirra. Síðustu ár hefur hann komið að þjálfun, fyrst hjá ÍBV og nú síðast aðstoðarþjálfari Southend United.

Þá verður Andy Pew áfram spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks, hefur Andy stýrt liðinu í síðustu tveimur leikjum.

„Við erum mjög ánægð með þessa ráðningu. Það fer gott orð af Hermanni sem er góður þjálfari. Stemmning, reynsla og gæði er eitt af því sem hann er þekktur fyrir, það mun hjálpa okkur í því verkefni að festa okkur í sessi í 2. deildinni og byggja upp lið til framtíðar.“ segir Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar.

„Þetta verður krefjandi verkefni en jafnframt spennandi og skemmtilegt. Ég er þakklátur fyrir tækifærið sem Þróttur Vogum er að veita mér. Ég er að taka við góðu búi frá Brynjari Gestssyni og núna er það mitt að halda áfram á sömu braut, byggja ofan á það sem hefur verið gert í vetur og síðustu leikjum. Leikmannahópurinn er gríðarlega spennandi og mikil gæði í hópnum. Eftir að hafa tekið fundi með Marteini og öðrum sem starfa fyrir félagið, þessi brennandi ástríða sem fólkið hefur fyrir félaginu þá varð ég að fá að vera þátttakandi. Nú er bara að vona að allir bæjarbúar snúi bökum saman og geri allt til að mynda stemmningu til að hjálpa liðinu í sumar.“ segir Hermann Hreiðarsson nýr þjálfari Þróttar Vogum.
Athugasemdir
banner
banner