Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 09. júlí 2020 18:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Woodward sagður vilja selja sex leikmenn til að fjármagna Sancho
Rojo og Sanchez er á sölulistanum.
Rojo og Sanchez er á sölulistanum.
Mynd: Getty Images
Ed Woodward, stjórnarformaður Manchester United, er sagður vilja klófesta Jadon Sancho, vængmann Borussia Dortmund.

Til þess að eiga fyrir Sancho þarf United að selja og Athletic er á því að Woodward sé með sex manna lista af leikmönnum sem hann vill selja.

Leikmennirnir eru þeir Alexis Sanchez, Marcos Rojo, Phil Jones, Chris Smalling, Jese Lingard og Diogo Dalot.

Sanchez og Smalling eru að láni í ítölsku Serie A deildinni og var Rojo að láni í Argentínu. United hefur ekki farið leynt með að vilja losna við Sanchez af launaskrá því Sanchez er á gífurlega háum launum og hefur engu skilað fyrir félagið frá því hann gekk í raðir þess.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, er einnig sagður í leit að skapandi miðjumanni og örvfættum miðverði.
Athugasemdir
banner
banner