Sóknarmaðurinn frábæri Luis Suarez þykir vera farinn að skoða í kringum sig. Hann er orðinn 33 ára og samningur hans við Barcelona rennur út á næsta ári.
Mitch Freely, blaðamaður BeIN Sport í Katar, segir frá því á samfélagsmiðlinum Twitter að Al Arabi hafi áhuga á því að krækja í Suarez.
Það er mjög athyglisvert í ljósi að Heimir Hallgrímsson er þjálfari Al Arabi og með liðinu leikur landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson. Þá er Bjarki Már Ólafsson í þjálfarateymi Heimis.
Freely segist hafa heimildir fyrir því að Al Arabi hafi áhuga á Suarez, en það verði hægara sagt en gert að fá hann svo.
Hér að neðan má sjá tístið.
Offt! Been reliably told that Al Arabi are interested in signing Luis Suarez. Although actually getting the Uruguayan would be a different matter. Would be a hell of a coup for the dream team! pic.twitter.com/agcHiJTE7B
— Mitch Freeley (@mitchos) August 9, 2020
Athugasemdir