Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 09. ágúst 2020 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Páll Sindri í Kára (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Miðjumaðurinn Páll Sindri Einarsson hefur fengið félagaskipti frá Kórdrengjum í Kára. Bæði félög eru í 2. deild karla.

Greint var frá því í hlaðvarpsþættinum Ástríðunni hér á Fótbolta.net. í lok júlí að Páll Sindri væri á leið í Kára.

„Páll Sindri er ekki að fá neinar mínútur frá Kórdrengjum og hann tilkynnti þeim það fyrri viku eða tíu dögum síðan að hann myndi ekki klára tímabilið með þeim. Hann hefur mætt á æfingar með Kára síðan þá," sagði Sverrir Mar Smárason í Ástríðunni.

Hinn 27 ára gamli Páll Sindri kom til Kórdrengja síðastliðið haust eftir að hafa spilað með Vestra í fyrra.

Páll Sindri þekkir vel til hjá Kára því hann spilaði með liðinu 2014-2018 fyrir utan árið 2015 þegar hann lék með Tindastóli.

Árið 2018 skoraði Páll Sindri átta mörk í fjórtán leikjum í 2. deildinni með Kára.
Athugasemdir
banner
banner
banner