Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 09. ágúst 2022 11:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Langar þig í gefins miða á undanúrslitin í Mjólkurbikarnum?
Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari.
Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Um helgina fara fram áhugaverðir leikir í undanúrslitum Mjólkurbikar kvenna.

Á föstudag mætast Stjarnan og Valur í Garðabænum, en þegar þessi lið mættust á dögunum þá var niðurstaðan 1-1 jafntefli. Selfoss og Breðablik mætast svo á laugardaginn.

Mjólkursamsalan stendur fyrir gjafaleik í tengslum við leik Breiðabliks og Selfoss.

„Við ætlum að gefa 20 miða á leikinn. Merktu hvað þú vilt fá marga miða og við drögum út fimmtudaginn 11. ágúst," segir í færslu í tengslum við leikinn en það er hægt að taka þátt bæði á Facebook og Instagram.

Mjólkurbikarinn á Facebook
Mjólkurbikarinn á Instagram.

Úrslitaleikurinn á svo að fara fram þann 27. ágúst næstkomandi.


Athugasemdir
banner
banner