Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 09. september 2020 22:30
Victor Pálsson
Hafnaði Manchester United vegna Ighalo
Victor Osimhen.
Victor Osimhen.
Mynd: Getty Images
Victor Osimhen, leikmaður Napoli, hafnaði því að ganga í raðir Manchester United áður en hann samdi við ítalska félagið.

Það er bróðir leikmannsins sem greinir frá þessu en hann ræddi við miðilinn Complete Sports um málið.

Osimhen stóð sig mjög vel hjá Lille í Frakklandi og var í kjölfarið keyptur á metupphæð til Napoli. Leikmaðurinn kostaði 71 milljón evra.

United hafði sýnt Osimhen áhuga áður en hann hélt til Ítalíu en vegna Odion Ighalo varð ekkert úr skiptunum.

Ighalo er frá Nígeríu líkt og Osimhen - þeir þekkjast vel og spila báðir fyrir landsliðið.

„Það er alveg rétt að Manchester United hafi viljað Victor. Hann ber hins vegar of mikla virðingu fyrir Odion Ighalo til að berjast við hann um sæti," sagði bróðirinn.

„Bróðir minn er mikill aðdáandi Ighalo og hann gat ekki séð sig fara á Old Trafford að berjast um sæti við markahæsta leikmann Afríkukeppninnar 2019."

Ighalo er í láni hjá United frá Shanghai Shenhua og er samningsbundinn þar til 31. janúar 2021.

Athugasemdir
banner
banner