Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 09. september 2020 10:46
Elvar Geir Magnússon
Watkins til Aston Villa (Staðfest)
Ollie Watkins með bros á vör.
Ollie Watkins með bros á vör.
Mynd: Aston Villa
Aston Villa hefur staðfest kaup á sóknarmaninnum Ollie Watkins sem kemur frá Brentford.

Þessi 24 ára leikmaður hefur gert fimm ára samning en kaupverðið er um 28 milljónir punda. Sú upphæð gæti hækkað upp í 33 milljónir punda.

Watkin skoraði 26 mörk í Championship-deildinni á síðasta tímabili en Brentford tapaði úrslitaleik gegn Fulham um að komast upp í ensku úrvalsdeildina.

Dean Smith, stjóri Villa, þekkir Watkin vel en þeir voru saman hjá Brentford.

„Ég get ekki beðið eftir því að klæðast hinum frægu litum Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni. Ég vil gera eitthvað sérstakt hérna og skora mörk," segir Watkin.

Smith er í skýjunum með að fá Watkins og segir að hann hafi verið einn eftirsóttasti sóknarmaður landsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner