Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. september 2022 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta hissa á ummælum Leno
Mynd: Getty Images

Bernd Leno gekk til liðs við Fulham frá Arsenal í sumar en tækifærin voru orðin af skornum skammti hjá Arsenal.


Hann sagði á dögunum að hann hafi ekki átt séns á að vinna sér sæti í liðinu aftur þar sem þetta snérist allt um pólitík.

Eftir slæma byrjun hjá liðinu á síðasta tímabili missti hann sætið til Aaron Ramsdale sem lét það ekki af hendi aftur. Arsenal vann Zurich 2-1 í Evrópudeildinni í gær og Mikel Arteta stjóri liðsins var spurður út í ummæli Leno eftir leikinn.

„Ég er mjög hissa. Ég veit ekki hvort hann væri að tala um pólitík þegar hann var að spila hvern einasta leik eða þegar hann spilaði ekki, ég er mjög hissa," sagði Arteta.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner