Núna fyrir stuttu var verið að draga í umspilið fyrir HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi sem fram fer á næsta ári.
Ísland þarf bara að spila einn leik eins og staðan er núna, og með sigri í venjulegum leiktíma eða framlengingu þá förum við á HM. Ef leikurinn ræðst í vítaspyrnukeppni og Ísland fer áfram þá gætum við lent í umspili í Nýja-Sjálandi í febrúar á næsta ári.
Ísland þarf bara að spila einn leik eins og staðan er núna, og með sigri í venjulegum leiktíma eða framlengingu þá förum við á HM. Ef leikurinn ræðst í vítaspyrnukeppni og Ísland fer áfram þá gætum við lent í umspili í Nýja-Sjálandi í febrúar á næsta ári.
Það má með sanni segja að íslenska liðið hafi verið óheppið þegar dregið var. Þetta var erfiðasti mögulegi drátturinn sem við gátum fengið.
Við fáum nefnilega annað hvort Belgíu eða Portúgal á útivelli. Þessi lið mætast 6. október og sigurliðið leikur svo við Ísland á heimavelli í úrslitaleik.
Ísland er hæst skrifaða liðið í umspilinu, en það lið sem kemur næst þar á eftir er Belgía sem er í 19. sæti heimslistans. Ísland er í 14. sæti listans.
Belgía er sigurstranglegri aðilinn fyrir leikinn gegn Portúgal, sem er í 27. sæti listans. Í þeim leik verða samt Portúgalar á heimavelli og mun það klárlega hjálpa þeim. Ef Portúgal kemst áfram þá verður það einnig mjög erfiður leikur en Portúgalar eru á uppleið.
Ísland spilaði við Belgíu á EM í sumar og endaði sá leikur með 1-1 jafntefli. Íslenska liðið var sterkari aðilinn í þeim leik heilt yfir en hann endaði samt sem áður með jafntefli.
Leikurinn þar sem allt verður undir fer fram þann 11. október næstkomandi. Verður áhugavert að sjá hvernig hann fer, en Ísland á möguleika á að komast á HM í fyrsta sinn.
Sjá einnig:
Verða stelpurnar okkar heppnar? - „Ógeðslega ósanngjarnt"
Athugasemdir