Nökkvi Þeyr Þórisson gekk til liðs við Beerschot í næst efstu deild í Belgíu í vikunni en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld.
Beerschot mætti Íslendingaliðinu Lommel í kvöld en Kolbeinn Þórðarson er leikmaður Lommel, hann var þó ekki í hópnum í kvöld.
Nökkvi byrjaði á bekknum en hann kom inná sem varamaður þegar tæpar tuttugu mínútur voru eftir. Lommel var 1-0 yfir í hálfleik og þeir bættu öðru marki við undir lok leiksins, lokatölur 2-0.
Með sigrinum fór Lommel uppfyrir Beerschot í 2. sæti deildarinnar eftir 5 umerðir. Lommel er með 9 stig á meðan Beerschot er með sjö stig.
Athugasemdir