Fotbolti.net
09.09.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Andre Gray til Sádi-Arabíu (Staðfest)

Andre Gray til Sádi-Arabíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Andre Gray er genginn í raðir Al-RIyadh í Sádi-Arabíu en þetta staðfesti félagið í gær.
Gray er 32 ára gamall og spilaði síðast með Aris í Grikklandi en áður lék hann fyrir Watford, Burnley, Brentford, Luton Town og QPR.

Framherjinn skoraði 26 mörk í ensku úrvalsdeildinni á fjórum tímabilum sínum í deildinni.

Jamaíkamaðurinn er nú formlega búinn að semja við Al-Riyadh í Sádi-Arabíu.

Gray er landsliðsmaður Jamaíku þar sem Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson þjálfar en hann á 13 landsleiki og 3 mörk að baki fyrir þjóðina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.