Lengjudeild kvenna: Glæsilegt sigurmark Guðrúnar kom Fylki upp í Bestu (Staðfest)

Fylkir er komið upp í Bestu deildina!

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Grótta 2 - 3 Fylkir
1-0 Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('23 )
1-1 Tinna Harðardóttir ('54 )
1-2 Erna Sólveig Sverrisdóttir ('61 )
2-2 Rebekka Sif Brynjarsdóttir ('73 )
2-3 Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('84 )
Lestu um leikinn

Fylkir mun spila í Bestu deildinni á næsta ári eftir að liðið vann Gróttu, 3-2, í spennuleik á Seltjarnarnesi í dag.
Grótta var líklegri aðilinn framan af í fyrri hálfleik og kom því lítið á óvart er Arnfríður Auður Arnarsdóttir skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
Heimakonur áttu hættulegri færi en færanýtingin þó ekki upp á sitt besta og gaf það Fylkisliðinu tækifæri á því að koma sér betur inn í leikinn.
Tinna Harðardóttir jafnaði á 54. mínútu áður en Erna Sólveig Sverrisdóttir kom gestunum yfir.
Rebekka Sif Brynjarsdóttir náði að jafna metin þegar tæpar tuttugu mínútur voru eftir.
Fullkomlega sett upp fyrir Fylkisliðið því það var Guðrún Karítas Sigurðardóttir sem gerði sigurmarkið og skaut Fylki upp í Bestu deildina með svakalegu skoti af hægri kantinum. Geggjað og dýrmætt mark sem dugði til að koma liðinu upp.
Fylkir hafnaði í öðru sæti deildarinnar með 38 stig og fer upp með Víkingum, sem er Lengjudeildarmeistari í ár.