09.09.26 - 19:21
Brynjar Ingi Erluson
Ída Marín gerði þrennu í frumrauninni

Ída Marín skoraði þrennu í fyrsta leiknum

Mynd: Hammarby

Ída Marín Hermannsdóttir skoraði þrennu í frumraun sinni með sænska liðinu Hammarby í kvöld er liðið pakkaði Gamla Upsala saman, 5-0, í 3. umferð sænska bikarsins.
Framherjinn kom frá FH á dögunum og sat á bekknum í fyrstu tveimur leikjunum. Í kvöld fékk hún svo tækifæri í byrjunarliðinu og nýtti það heldur betur.
Ída Marín skoraði tvívegis í fyrri hálfleik og fullkomnaði þrennuna strax í upphafi þess síðari. Hún hefði vart getað óskað sér betri byrjunar með nýja liðinu.
Guðrún Arnardóttir byrjaði á bekknum en lék síðasta hálftímann.
Hammarby vann öruggan sigur og tryggði sér sæti í riðlakeppni bikarsins sem fer fram í byrjun næsta árs.
Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliði Häcken í 2-0 sigri á Gautaborg. Häcken er því einnig komið í riðlakeppnina.