lau 09. október 2021 20:19
Victor Pálsson
Leið ömurlega eftir baul frá eigin stuðningsmönnum
Mynd: EPA
Sergi Roberto, leikmaður Barcelona, viðurkennir að honum hafi liðið ansi illa fyrr á tímabilinu er hann heyrði baul frá eigin stuðningsmönnum í leik gegn Bayern Munchen.

Stuðningsmenn Barcelona bauluðu grimmt á Roberto í þessum leik og var talað um að hann hafi grátið í búningsklefanum eftir leik.

Roberto mætti nú í viðtal hjá Diario Sport og tjáði sig um atvikið. Hann segir að móttökurnar í þessum leik hafi komið sér mikið á óvart.

„Ég byrjaði tímabilið með tveimur mörkum og einni stoðsendingu. Þess vegna var ég mjög hissa að heyra þetta baul,“ sagði Roberto.

„Þú verður að virða skoðun allra og ég nota þetta sem auka hvatningu til að leggja harðar að mér og standa mig betur.“

„Ég ætla ekki að ljúga að ykkur, á þessum degi þá leið mér ömurlega. Bæði þennan dag og þá sem komu eftir. Ég hafði aldrei upplifað þetta og tilfinningin var slæm.“

„Ég hef verið allan minn feril hjá félaginu og engum líkar við svona. Ef þetta hefði ekki haft áhrif á mig, þá hefði það verið meira vandamál."
Athugasemdir
banner
banner
banner