Fékk tíu milljónir evra á ári en fær núna bara lágmarkslaun

Paul Pogba.

Mynd: EPA

Paul Pogba.

Mynd: EPA
Ítalska félagið Juventus hefur sent bréf til franska miðjumannsins Paul Pogba þar sem honum er tjáð að launalækkun á samningi hans hafi tekið gildi.
Fyrir helgi var fall Pogba á lyfjaprófi staðfest. Pogba féll á lyfjaprófi eftir fyrsta deildarleik Juventus á tímabilinu en hann mældist með of hátt magn af testósteróni í líkamanum.
Pogba á yfir höfði sér allt að fjögurra ára bann frá fótbolta ef það kemur í ljós að miðjumaðurinn tók viljandi ólögleg lyf. Ef hann getur sannað að hann tók þau óvart þá verður bannið líklega í kringum tvö ár, frekar en fjögur.
Pogba var með um tíu milljónir evra í árslaun frá Juventus en fær núna tvö þúsund evrur á mánuði en það eru tæplega 300 þúsund krónur. Juventus þarf bara að borga honum lágmarkslaun eftir að hann féll á lyfjaprófinu.
Pogba gekk til liðs við Juventus á frjálsri sölu síðasta sumar eftir erfiðan tíma hjá Manchester United.
Erfiðu tímarnir hafa haldið áfram á Ítalíu.