Gunnlaugur Fannar riftir samningi við Keflavík

Gunnlaugur Fannar Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnlaugur Fannar Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Gunnlaugur Fannar Guðmundsson hefur rift samningi sínum við Keflavík samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Hann vonast til að spila áfram í Bestu deildinni á næsta tímabili.

Gunnlaugur Fannar, sem er 29 ára, gekk í raðir Keflavíkur fyrir tímabilið sem var að klárast. Hann spilaði 22 leiki með liðinu í Bestu deildinni í sumar en Keflavík féll úr deildinni.
Gunnlaugur Fannar er uppalinn í Álftanesi og Haukum en hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með síðarnefnda liðinu.
Hann fór svo í Víking en náði ekki að brjóta sér leið inn í byrjunarliðið þar. Hann lék með Kórdrengjum frá 2020 til 2022 áður en hann færði sig yfir í Keflavík.
Núna verður fróðlegt að sjá hvað varnarmaðurinn gerir næst á sínum ferli.