Umboðsmaðurinn Magnús Agnar dæmdur í bann í Svíþjóð

Magnús Agnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hugo Larsson

Mynd: EPA

Magnús Agnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænski miðillinn Fotbollskanalen greinir frá því að íslenski umboðsmaðurinn Magnús Agnar Magnússon hafi verið dæmdur í 18 mánaða bann frá því að starfa sem umboðsmaður í sænska boltanum.
Sænska knattspyrnusambandið tók þessa ákvörðun eftir að kvörtun barst inn frá Hugo Larsson, bráðefnilegum miðjumanni sem var keyptur til Eintracht Frankfurt í sumar og hefur verið snöggur að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.
Larsson, 19 ára, var leikmaður Malmö þegar umrædd brot áttu sér stað og gæti kvörtunin leitt til þess að sænska stórveldið fái einnig refsingu.
Magnús Agnar er með marga íslenska og erlenda leikmenn á sínum snærum og hefur átt marga skjólstæðinga í sænska boltanum, en er nú í banni þar til í lok mars 2025 eftir ákvörðun aganefndar sænska knattspyrnusambandsins.
Magnús, sem starfar fyrir umboðsskrifstofuna Stellar, er sakaður um ýmis brot og segir aganefndin að hann hafi ekki fylgt viðeigandi reglugerð varðandi vernd ungra leikmanna.
Magnús var umboðsmaður Larsson, sem er byrjaður að spila fyrir A-landslið Svíþjóðar, þar til síðasta vor þegar leikmaðurinn ákvað að binda endi á samninginn. Hann skipti svo til Frankfurt um sumarið með nýjan umboðsmann, eftir að hafa lagt inn kvörtun vegna Magnúsar.
Í kvörtuninni talaði Larsson meðal annars um að Magnús hafi hótað sér lögsókn fyrir að segja upp samningnum sem var á milli þeirra. Magnús svaraði því með að segja að hann hafi upprunalega verið andvígur uppsögn á samningi vegna þess að það var rúmt ár eftir af samningstímanum, en hann hafi að lokum samþykkt uppsögnina í byrjun apríl.
Ein af reglunum sem Magnús er dæmdur fyrir að hafa brotið er sú að hann var umboðsmaður leikmanns undir lögaldri án þess að hafa tilskilin réttindi. Þá gerðist hann einnig sekur um að semja um greiðslu við leikmann undir lögaldri.
Þó að Magnús hafi framið þessi tvö brot, þá skrifuðu bæði Larsson og móðir hans undir samninginn við Magnús þremur mánuðum fyrir 18 ára afmælið. Í samningnum var tekið fram að Magnús fengi engar greiðslur frá Larsson fyrr en eftir 18 ára afmælisdaginn, en miðað við reglurnar sem voru í gildi þegar skrifað var undir samninginn þá mátti ekki gera það.
Magnús benti á hlutverk Malmö FF í þessum samningsmálum og er sænska knattspyrnusambandið því með félagið til rannsóknar. Sú rannsókn gæti leitt til refsingar.
Magnús hefur tíma til 11. október til að áfrýja dómi aganefndar.

Heimild: Fotbollskanalen

Hugo Larsson

Mynd: EPA