Úrslit sem eru risastórt högg fyrir málstað Ragga Sig

Fram fékk skell í Árbænum en önnur úrslit urðu liðinu hagstæð og það hélt sér í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar náðu að halda sæti sínu í Bestu deildinni þrátt fyrir að tapa 5-1 fyrir Fylki í lokaumferðinni. Liðið var í fallhættu og hefði getað farið niður ef ÍBV hefði náð stórum sigri gegn Keflavík.
Fram hélt sæti sínu eftir að hafa náð þremur sigrum í tíu leikjum undir stjórn Ragnars Sigurðssonar. Ragnar var ráðinn út tímabilið og vill starfið til frambúðar en í Innkastinu var talað um að skellurinn í Árbænum hjálpi honum alls ekki.

„Raggi Sig var hundóánægður með sína menn. Að fá þessi úrslit, þennan skell í lokaumferðinni þegar þeir eru í smá fallhættu fyrir leikinn. Það þurfti ýmislegt að ganga á og meðal annars þurftu þeir að tapa stórt sem þeir gerðu. Þeir voru þannig lagað séð ekki of langt frá þessu (fallinu). Fyrir málstað Ragga Sig, sem vill halda áfram í þessu starfi, er þetta risastórt högg," segir Elvar Geir Magnússon.
Sæbjörn Steinke segir að Fram hafi gert sitt í því að falla. „Þú veist að þú mátt ekki tapa stórt en það gerist samt þegar allt er undir, það er agalegt," segir Sæbjörn.
Það sem hefur verið rætt um er að Raggi hafi klárlega bætt varnarleikinn eftir að hann varð aðalþjálfari en það var ekki að sjá í Árbænum.
„Þetta var gamla Fram sem við sáum þarna, alls konar mörk og þetta þriðja mark sem þeir fá á sig. Nikulás Val tæklar boltann inn þegar hann liggur í teignum. Maður hefur oft séð Fram fá á sig svona mörk í sumar," segir Valur Gunnarsson. „Sem betur fer fyrir Fram þá ákvað ÍBV að mæta í þennan leik gegn Keflavík eins og þeir gerðu."
„Varðandi framtíð Ragga þá er hann heldur ekki með allar þjálfaragráðurnar sem þarf. En Igor Kostic sem er aðstoðarþjálfari er með þær allar og þetta er í lagi ef báðir eru skráðir þjálfarar liðsins," segir Sæbjörn.
Í þættinum er rætt um hver gæti tekið við Framliðinu ef Ragnar fær ekki samning áfram. Nöfn Rúnars Kristinssonar og Þorvaldar Örlygssonar eru nefnd.