Fotbolti.net
09.11.24 - 16:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ítalía: Birkir Bjarna lagði upp og skoraði - Tap hjá Mikael

Ítalía: Birkir Bjarna lagði upp og skoraði - Tap hjá Mikael
Canon

Mynd: Getty Images

Birkir Bjarnason skoraði annan leikinn í röð eftir að hafa komið inn á sem varamaður fyrir Brescia í næst efstu deild á Ítalíu.

Brescia fékk Cosenza í heimsókn en gestirnir voru með 2-0 forystu í hálfleik. Birkir kom inn á strax í upphafi seinni hálfleiks og hann minnkaði muninn og lagði svo upp mark á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Crosenza tókst svo að næla í sigurmarkið í uppbótatíma. Hjörtur Hermannsson var ekki í leikmannahópi Carrarese þegar liðið tapaði 2-0 geegn Modena.

Brescia er með 17 stig í 8. sæti eftir 13 umferðir. Carrarese er með 13 stig í 17. sæti.

Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Venezia þegar liðið tók á móti Parma í efstu deild. Staðan var 1-1 í hálfleik en Mikael var þá tekinn af velli. Parma tókst að skora sigurmarkið áður en flautað var til leiksloka.

Venezia 1 - 2 Parma
1-0 Hans Nicolussi ('5 )
1-1 Emanuele Valeri ('17 )
1-2 Ange Bonny ('68 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.