Fotbolti.net
09.12.18 - 18:08
Arnar Helgi Magnússon

England: Sigurmark Wolves kom í uppbótartíma

Doherty skoraði sigurmark Wolves.

Doherty skoraði sigurmark Wolves.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle 1 - 2 Wolves
0-1 Diogo Jota ('17 )
1-1 Ayoze ('23 )
1-2 Matthew Doherty ('90 )
Rautt spjald:DeAndre Yedlin, Newcastle ('57)
Það var heldur betur dramatík þegar Newcastle tók á móti Wolves í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Diogo Jota kom Wolves yfir á 17. mínútu þegar hann tók frábærlega vel við fyrirgjöf frá Helder Costa og stýrði boltanum í netið.

Ayoze Perez jafnaði metin stuttu síðar með góðu skallamarki eftir sendingu frá Salomon Rondon. DeAndre Yedlin var rekinn útaf á 57. mínútu þegar hann togaði Diogo Jota niður þegar hann var sloppinn einn í gegn.

Sigurmark Úlfanna kom á 95. mínútu þegar Diogo Jota átti skot sem að Dubravka varði en Matt Doherty náði frákastinu og setti boltann í netið.

Úlfarnir skjótast upp í tíunda sæti deildarinnar en Rafa Benitez og hans menn í fimmtánda sæti.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.