fös 10. janúar 2020 15:42
Magnús Már Einarsson
Gary Martin til Darlington á láni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Darlington í ensku utandeildinni hefur fengið framherjann Gary Martin á láni frá ÍBV þar til í lok mars.

Félagaskiptin hafa legið í loftinu undanfarna daga. Darlington sakaði ÍBV um að tefja skiptin en Eyjamenn svöruðu því af krafti.

„Það er einhvern veginn þannig að öll ævintýri taka enda. Hér með er staðfest að Gary Martin hefur verið lánaður til Darlington! Gary mun spila með Darlington næstu mánuði en snýr aftur til Eyja áður en farið verður í æfingaferð 28. mars. Við óskum Gary góðs gengis hjá Darlo!" segir á heimasíðu ÍBV.

Gary Martin var markahæstur í Pepsi Max-deildinni á síðasta tímabili en hann kom til ÍBV frá Val í júlí.

Sjá einnig:
Þjálfari Darlington: Endalaust vesen á ÍBV vegna Gary Martin
ÍBV svarar Darlington: Það er ekki öll vitleysan eins
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner