Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 10. janúar 2021 15:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Raunveruleikastjarna kom inn á gegn Leeds
Mark Wright.
Mark Wright.
Mynd: Getty Images
Leeds þurfti að sætta sig við niðurlægjandi tap gegn Crawley Town í enska FA-bikarnum í dag.

Leeds er í ensku úrvalsdeildinni á meðan Crawley er í D-deildinni. Leikurinn endaði 3-0 fyrir Crawley og eru það gríðarlega óvænt úrslit.

Á varamannabekknum hjá Crawley var raunveruleikastjarnan Mark Wright en hann kom inn á sem varamaður í uppbótartíma og spilaði síðustu sekúndur leiksins.

Wright var í raunveruleikaþáttunum The Only Way Is Essex en hann hefur einnig verið í öðrum vinsælum þáttum eins og I'm a Celebrity...Get Me Out of Here! og Strictly Comes Dancing.

Wright, sem er 33 ára, hætti lengi vel í fótbolta en byrjaði aftur að alvöru þegar hann skrifaði undir stuttan samning við Crawley í síðasta mánuði.

Athugasemdir
banner
banner