Átta liða úrslitin í enska deildabikarnum hefjast í kvöld með tveimur leikjum.
Einn úrvalsdeildarslagur fer fram á St. James' Park þar sem Newcastle fær Leicester í heimsókn.
Liðin eru á sitthvorum staðnum í deildinni þar sem Newcastle er í 3. sæti en Leicester í því þrettánda aðeins tveimur stigum frá fallsæti.
Manchester United fær Charlton sem leikur í þriðju efstu deild í heimsókn en Charlton sló Brighton úr leik í 16 liða úrslitum.
Báðir leikir hefjast kl. 20.
þriðjudagur 10. janúar
20:00 Newcastle - Leicester
20:00 Man Utd - Charlton Athletic
Athugasemdir